Notice: Undefined property: stdClass::$imageGeneric in /home/grimsnes/litabok/components/com_k2/views/item/view.html.php on line 663

Allir hafa eitthvað til að ganga á

Stjörnugjöf
(11 Stig)

Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.


Fíllinn hefur feitar tær,
ljónið hefur loppur tvær,
músin hefur margar smáar,
en ormurinn hefur ansi fáar.


Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.


Fiskurinn hefur fína ugga
flóðhesturinn engan skugga
krókódíllinn kjaftinn ljóta,
sá er nú klár að láta sig fljóta.

Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.


Á vængjunum fljúga fuglarnir,
á fótunum ganga trúðarnir,
á hnúum hendast aparnir,
á rassinum leppalúðarnir.

Allir hafa eitthvað til að ganga á.
Teygðu fram löppina og lof mér að sjá.

Lag og ljóð: Ólafur Haukur Símonarson

Lesið 6326 Sinnum
Meira í þessum flokk Allur matur »