Tónlistar myndbönd / 46854 Skoðað

Sjá snjóinn glitra á fjallinu í nótt

Ekkert fótspor hér að sjá

Eitt einsemdar konungsríki

Og ég virðist, drottningin

Vindurinn gnauðar eins og ólgan inni í mér

Gat ei byrgt það inni en ég reyndi samt

 

Hleyp þeim ei inn lát þau ei sjá

Vertu góða stelpan sem þú varst

Feldu, bældu, seg þeim ei frá

En þau vita það þá

 

Þetta er nóg, þetta er nóg

Get ei lengur haldið í mér

Þetta er nóg, þetta er nóg

Ég sný burt og skelli á eftir mér

Mig varðar ei

Hvað þau segja við því

Látið geysa storm

Því kuldinn hann hefur ei háð mér neitt

 

Það er merkilegt hvað fjarlægð

Gerir allt svo ofursmátt

Og hræðslan sem hafði tökin

Virðist missa allan mátt

Ég þarf að sjá hvað ég get gert

Og reyná verk mín umtalsvert

Og boð og bönn ei halda mér

Ég er frjáls

 

Þetta er nóg, þetta er nóg

Uppi í himni eins og vindablær

Þetta er nóg, komið nóg

Og tár mín enginn sér fær

Hér ég stend

Og hér ég verð

Látið geysa storm

 

Minn máttur þyrlast gegnum loftið niðrá jörð

Mín sál er hringiða úr frosnum brotamyndum gjörð

Ein hugsun kristalla sem ískalt sprengigos

Ég aldrei aftur sný

Það var sem eitt sinn var

 

Þetta er nóg, þetta er nóg

Og ég rís eins og morgunsól

Þetta er nóg, þetta er nóg

Þessi þæga stelpa fór

Hér ég stend

Ein um bjartan dag

Látið geysa storm

 

Kuldinn hann hefur ei háð mér neitt

Svipað efni